Samkvæmt vísindalegum útreikningum eru í
þessum skrifuðu orðum 25 klukkustundir og 42 mínotur eftir af
árinu 2006. Því er ekki úr vegi að líta um öxl og rifja upp það
sem upp úr stóð á árinu sem senn er að lokum komið, ykkur er
frjálst að hætta að lesa ef ykkur þykir annálar lítt spennandi
lesning. En þessi mun þó vera með þeim betri þar sem við viljum
standa undir þeim heiðri sem okkur var veittur á þeirri frábæru
bloggsíðu sem hún frænka okkar og góð vinkona Guðrún Eik hefur
umsjón með.
Janúar
Þann 1. janúar..........nei, við erum að kidda í
ykkur, þessi annáll verður ekki með þessu sniði. Við ætlum að
brjóta hann upp svo hann verði nú svolítið auveldari lesning. En ef
svo ólíklega vill til að þið endinst ekki út allan annálin hvetjum
við ykkur til þess að lesa liðinn ljósmynd ársins neðst.
Útilega ársins: The one and
only to Buska í Grímsnesi. Við systurnar lögðum land undir fót í
ansi skemmtilega sumarbústaðaferð þar sem gekk á ýmsu, bíll bilaði,
sólpallur brotnaði, sólstóll rifnaði (hver skyldi hafa átt sökina á
því) og sálir voru særðar (hhmmm...hver var særingamaðurinn??)

Tekið af skarið ársins: Guðrún
tók af skarið öllu að óvörum og sagði skilið við spjót, kúlur og
sandgrifjur, sem sagt hætti í frjálsum og byrjaði í körfu.

Fyndið ársins: Þegar pabbi varð
svo þjakaður af hungir að hann réri til fiskjar, vopnaður
spýtukubbi með áföstu girni og snéri til baka með marhnút.

Taugaveiklun ársins: Þegar
Guðrún gerðist driver á sveitaball og var stoppuð af löggunni og
látin blása í blöðru vegna gruns um ölvunar. Momentið var svo
algjörlega toppað þegar ökuskírteinið fannst ekki því sibba var
ekki alls kostar allsgáð og leitaði í vitlausu veksi.
Hljómsveit og plata ársins:
Keane og under the iron sea.
Kvikmynd ársins: Mýrin, stóðst
fyllilega allar væntingar að okkar mati.
Versta mynd ársins: Blóðbönd.
Hvað var höfundurinn eiginlega að reykja ???? Sterkar inn koma
einnig the break up og flushed away
Bíll ársins: suzuki swift
árgerð 1989.

Vonbrigði ársins: Draugasetrið
á Stokkseyri. Ekki spyrja hvað við vorum að þvælast á Stokkseyri.
Að Guðrúnar mati þegar hún áttaði sig á því að hún ætti aldrei
eftir að meika það í frjálsum.
Eftirsjá ársins: 1400 kallinn
sem Guðrún og Sibba borguðu til þess að fá augum að lít áðurnefnt
draugasetur. Helga prísar sig sæla yfir að vera ennþá bara barn og
sleppa með 900 krónur.
Á barmi taugaáfalls ársins: Eik
og Gróa týndar í Belgíu og Hollandi.
Mjólkurbað ársins: Helga fékk
óvænta sturtu í matslaum á Laugarbakka. En af eigin sögn varð henni
ekki meint af og þvert á móti hárið miklu fegurra á eftir 
Matur ársins: Sun maid rúsínur
áður en vínberjaviðurinn kom til sögunnar.
Íþrótt ársins: Krikket
Reifarakaup ársins: Þegar
Guðrún fór hamförum í second hand búðinni í brussel.
Verstu kaup ársins: Næstum því
allt sem Helga keypti í Svíþjóð, hvað var hún eiginlega að reykja
??
Kind ársins: Ísabella yndi sem
fékk að dúsa lant fram á sumar í fiskikari með heilan hóp af lömbum
hangandi á sér og fékk þar af leiðindi heiftarlega júgurbólgu.
Verst er að blessunin þekkist ekki úr ansi stórum hóp.
Verðulaun ársins: Féllu í skaut
Helgu. Nr. 1 kvennmanns rafmagnsrakvél og rafmagnsknúin tannþráður
á norðurlandamótinu, norðmenn eru svo tæknivæddir. Græn kanínueyru
og peysa í stærð 140 á Gautaborgarleikunum. Útrunnir ostar frá KS í
stærðfræðikeppninni. Ragettur á áramóti fjölnis.

Álög ársins: Voru á
myndavélunum sem áttu á marka upphaf ljósmyndaferils Gróu. Sú fyrri
hverf í Brussel ferðinni en sú seinni endaði í gólfinu á
ltilujólunum á Laugarbakk og hefur verið úrskurðuð ónýt. Þess má
geta að þetta voru nákvæmlega eins myndavélar og ákveðið hefur
verið að filmumyndavélin góða verði látin dugal, allaveg enn um
sinn.
Stuldur ársins: Þegar óprúttnir
norðmenn létur greipar sópa og tóku veskið hennar helgu með ýmsum
verðmætum auk veskis og síma í eigu Brynju Finns. Þær geta nú
kannski sjálfum sér um kennt fyrir að hafa skilið þetta
eftirlitlaust í miðbæ moss.
Lúxus ársins: Þegar við sváfum
á flottasta hóteli borgarinnar 1919 í boði (allaveg þangað til að
vísareikningurinn kemur í hús) Kristin Thorsteindottir the biggest
name in the hotel buissnes.
Ofát ársins: Þegar Helga missti
sig gjörsamlega í morgunmatnum á 1919. Hún náði að hesthúsa
ótrúlegu magni matar rétt fyrir keppni þar sem hún var svo lengi að
hafa sig til fyrir framan spegilinn á herberginu. 2 metrum í kúlu,
40 cm í langstökki og sekúndu í 60m seinn frá hennar besta setti
hún íslandsmet í 200m þegar árhrifum sykursins í súkkulaðifyllta
smjördeigshorninu fór að gæta. Hún vill meina að hún hafi ekkert
vitað um innihald hornsins og en þótti samt súkkulaði spænirin ofan
á grunsamlegur. Hvar er eiginlega lyfjaeftirlitið ????
Metnaður ársins: Megrun
sem fór aðeins úr böndunum og endaði með ansi hreint skemmtilegri
blóðmaríu. Vatn, rauðblóðkrorn á stangli, kolvitlaus sölt og
kreatín í miklu magni, ekki komið úr dollu.
Lokaverkefní ársins:
Sjókúluverkefni Sigurjóns sem uppskar einkunina 10, öllu
að óvörum jeje. Geri aðrir betur að skrifa fleiri tug blaðsíðna um
sjókúlur.
Ljósmynd ársins: Já, hér er
komið að ykkar framlagi til þessa annáls kæru lesendur. Hvað mynd
frá sumrinu 2006 og finnst ykkur vera mynd ársins. Kosning fer fram
í skoðunum og ekki er krafsit nafns en mælst er til þess að hver
kjósi bara einu sinni. Beðist er velvirðinar að myndir vantar
en við leyfum okkur að kenna myndavélaóförum alfarið um.
Jæja þá er þessi allt of langi en spreng
hlægilegi annáll að lokum komin, ekki seinna vænna þar sem einungis
sólarhringur og 27 mínotum betur er eftir af þessu ári. Nú geta
stærðfræðiheilar reiknað út hversu lengi við vorum að skrifa þetta
blogg.
Það er þá bara eftir að óska ykkur öllum
gleðilegs nýs árs með kærri þökk fyrir að lesa bloggið okkar :*